Transparency Center
Upplýsingar um stefnur Google

Markmið okkar um að gera upplýsingar aðgengilegar og gagnlegar fyrir alla byrjar með því að gera vörurnar okkar öruggar. Skoðaðu Gagnsæismiðstöðina okkar til að skilja þær reglur sem verja notendur fyrir skaða og misnotkun, ásamt upplýsingum um hvernig við þróum og framfylgjum þessum stefnum.
Gripið til aðgerða til að tryggja öryggi á vefnum
-
5,1 milljarður
slæmra auglýsinga settar á bannlistaÁrið 2024 settum við milljarða slæmra auglýsinga á bannlista í Google-vörum til að vernda notendur gegn svindli.1 -
18,5 milljónir
YouTube-vídeóa fjarlægðYfir 18,5 milljónir vídeóa voru fjarlægð á síðari hluta ársins 2024 vegna brota á reglum netsamfélagsins.2 -
882 þúsund
vefslóðir fjarlægðar úr atriðaskráAðeins á síðari hluta 2024 fjarlægðum við yfir 882 þúsund vefslóðir úr Google-leitarniðurstöðum sem tilkynntar voru fyrir efni sem sýnir kynferðislega misnotkun á börnum.3
Stefnur Google

Viðhald á heilbrigðu stafrænu vistkerfi
Milljarðar manna leita til Google á hverjum degi til að fá hágæða, áreiðanlegar upplýsingar og trausta upplifun á netinu. Við tökum ábyrgð okkar alvarlega að viðhalda heiðarleika vara okkar og þjónustu og byggja upp traust notenda. Þjónustuskilmálar okkar, vörustefnur, þróunarstefnur og viðmiðunarreglur netsamfélagsins eru til staðar til að halda notendum öruggum á meðan við keppumst við að uppfylla markmið okkar.

Teymi tileinkað trausti og öryggi
Við fjárfestum í rannsóknum og tækni til að fá innsýn í hvernig hægt væri að misnota vörur okkar og þjónustu og til að draga úr hugsanlegri áhættu. Teymin okkar vinna sleitulaust að því að skapa og innleiða gagnadrifnar og skalanlegar stefnur og staðla sem verja notendur okkar með því að tryggja ábyrga notkun á vörum okkar og þjónustu.
Komið í veg fyrir skaða og misnotkun í vörunum okkar
Um fjölbreytni stefnusviða
-
Vörustefnur
Kynntu þér hvernig Google setur skilmála, reglur og leiðbeiningar fyrir notendur, þróunaraðila og efnishöfunda eftir vöru.
-
Persónuvernd, skilmálar og gervigreind
Kynntu þér hvernig Google nálgast persónuvernd til að standa vörð um upplýsingarnar þínar og setur skýrar væntingar með þjónustuskilmálum.

Skuldbinding um gangsæi
Kynntu þér betur hvernig við gefum reglulega út upplýsingar um beiðnir frá stjórnvöldum um fjarlægingu efnis sem og um aðgerðirnar sem við notum til að vernda notendur okkar og kerfi fyrir efni sem brýtur gegn reglum okkar eða staðbundnum lögum. Kynntu þér einnig hvernig efnistillögur virka í vörum og þjónustum Google.

Verkfæri fyrir ábendingar um efni, tilkynningar og áfrýjanir
Finndu gagnleg verkfæri til að senda ábendingar um efni, tilkynna efni og áfrýja tilteknum refsiaðgerðum. Kynntu þér einnig áætlanir okkar fyrir samstarfsaðila sem vinna hörðum höndum að því að uppræta skaðlega virkni á netinu.
Kynntu þér leiðtoga okkar
1 Öryggisskýrsla Google Ads, apríl 2025
2 Gagnsæisskýrsla YouTube-netsamfélagsins, september 2024
3 Gagnsæisskýrsla um efni sem sýnir kynferðislega misnotkun á börnum, desember 2024